Janus endurhæfing hefur vaxið í takt við þörf almennings fyrir starfsendurhæfingu. Starfsfólk hefur verið duglegt að þróa nýjar aðferðir og m.a. fengið Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs afhent af forseta Íslands fyrir framúrskarandi frumkvöðlastarf og árangur. Stjórn og starfsfólk Janusar endurhæfingar er þeirra skoðunar að nauðsynlegt sé að halda áfram að þróa nýjar leiðir í starfs- og atvinnuendurhæfingu og gera það á gagnreyndan hátt. Það er því mikill fengur fyrir framtíð starfs- og atvinnuendurhæfingar á Íslandi að fá Vilmund Guðnason prófessor sem leiðbeinanda við framtíðar rannsóknarverkefni innan þessa sviðs.
Vilmundur Guðnason