Laus störf
Engar lausar stöður eru í augnablikinu. Staða getur hinsvegar losnað skyndilega og eru þá ávallt innsendar umsóknir skoðaðar.
Áhugasamir aðilar eru hvattir til að senda inn umsókn sé áhugi fyrir því að vinna hjá Janusi endurhæfingu og taka fram að hafa megi samband við þá þegar staða losnar.
Í Janusi endurhæfingu starfar samhentur hópur. Fastráðnir starfsmenn eru kringum 30 og verktakar 60-80 manns. Þátttakendur í endurhæfingu um 120 manns á hverjum tíma.
Áhersla er lögð á fagmennsku, skapandi og lifandi umhverfi sem setur þátttakandann í fyrsta sæti. Nýsköpun og vísindi fá einnig að blómstra, sem fellur vel að framsæknum fyrirtækum. Við dveljum ekki við vandamálin heldur lítum til lausna.
Áhersla er lögð á þverfaglegateymisvinnu og sjálfstæð vinnubrögð. Starfsmenn eru hvattir til að þróa hugmyndir sínar í starfsendurhæfingu og þurfa að vera óhræddir við að takast á við ný og krefjandi verkefni. Gott tölvulæsi er nauðsynlegt þar sem öll skráning og skýrslugerð er á rafrænu formi.
Í Janusi starfa t.d. félagsráðgjafar, iðjuþjálfar, sálfræðingar, sjúkraþjálfarar, hjúkrunarfræðingur, listamenn og læknar.
Ef þér líst vel á þær upplýsingar sem gefnar eru upp á heimsíðunni og finnst ofangreind lýsing eiga vel við þig gætir þú einmitt verið aðilinn sem við leitum að næst
Sendu okkur umsókn þína á netfangið janus@janus.is með titlinum ,,Starfsumsókn-Janus endurhæfing”.