Styrktarsjóður þátttakenda

Sjóðurinn var stofnaður í apríl 2013 til að styrkja þátttakendur, sem eru í tímabundinni fjárhagslegri neyð eftir að fullreynt hefur verið að þeir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá sveitarfélagi eða hinu opinbera.

Stofnfé sjóðsins er framlag stjórnar Janusar endurhæfingar ehf. ásamt tekjum af sölu Iðjubrautar í nóvember 2012.

Tekjur

Tekjur styrktarsjóðsins koma í dag mestmegnis af ágóða sem myndast við sölu á vörum sem þátttakendur búa til í endurhæfingunni. Um er að ræða bæði nytja- og listmuni.  Uppbyggingarstarf sjóðsins byggir einnig á gjöfum og áheitum einstaklinga og fyrirtækja. Sú velvild skiptir afar miklu máli til að skapa þá umgjörð sem sjóðurinn starfar við í dag.

Bankareikningur Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar er hjá Íslandsbanka er númer 526-26-4907 kennitala 490713-0340. Þeir sem vilja styrkja sjóðinn er velkomið að leggja inn frjáls framlög á reikninginn.

Scroll to Top