Heimsókn ráðherra

Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra kom í
heimsókn í gær, þann 25. apríl 2023 og kynnti sér starfsemi Janusar
endurhæfingar. Með honum í för var Ólafur Elínarson aðstoðarmaður og Birna
Sigurðardóttir sérfræðingur. 

Gestirnir sýndu starfseminni áhuga og skoðuðu meðal annars fallega listmuni sem þátttakendur Janusar endurhæfingar hafa skapað. Listmunirnir eru til sölu og rennur allur ágóði af sölunni inn í styrktarsjóð Janusar endurhæfingar, https://sala.janus.is/ 

Scroll to Top