DAM-Færniþjálfun

Fagfólk innan Janusar hefur frá árinu 2019 menntað sig í gagnreyndu meðferðarúrræði sem kallast Díalektísk atferlismeðferð (DAM). Meðferðin var þróuð af Marsha Linehan og upphaflega hugsuð sem meðferð fyrir einstaklinga með jaðarpersónuleikaröskun, sjálfskaða- og sjálfsvígstilburði. Síðar hafa rannsóknir leitt í ljós að meðferðin er einnig gagnleg við öðrum persónuleikaröskunum, átröskunum, langarvarandi þunglyndi, kvíða, alvarlegum tilfinningavanda og samskiptavanda.

Í DAM eru kenndir fjórir grunnfærniþættir: Núvitund, tilfinningastjórn, samskiptafærni og streituþol. Markmið meðferðarinnar er að aðstoða einstaklinginn við að bæta samskiptafærni, draga úr tilfinningaviðbrögðum. Meðferðin byggist á þeirri hugmynd að fólk sé alltaf að gera sitt besta en með því að læra hjálplegar aðferðir til að takast á við tilfinningar sínar- þá getur það gert enn betur. 

September 2020 fór af stað fyrsta 6 mánaða DAM hópmeðferðin og lauk henni í mars 2021. Meðferðin fór fram vikulega í hópi ásamt því að þátttakendur mættu vikulega til síns einstaklingsmeðferðaraðila. Vorið 2022 fór af stað fyrsti hópurinn í DAM-Atvinnufærni sem lesa má um hér. 

Í brautardagskrá Janusar eru í boði DAM-færniþjálfunarhópar í hverri sex vikna lotu. Hóparnir eru eftirfarandi: 

  • DAM- Núvitund
  • DAM- Samskiptafærni
  • DAM- Tilfinningastjórnun
  • DAM- Streituþol 

Mælst er til þess að þátttakandi ljúki hópum í Núvitund og Tilfinningastjórnun áður en hann skráir sig í Streituþol.

Scroll to Top