Árangurinn árið 2022

52 % í vinnu, nám eða virka atvinnuleit
66% af þeim sem útskrifuðust hækkuðu lífsgæði sín umtalsvert
Skrífurit 2022

Starfsemin skilaði framúrskarandi árangri eins og endranær árið 2022 en 52% þátttakenda fóru aftur í vinnu, nám eða virka atvinnuleit, þrátt fyrir þung geðræn vandamál.

Sérlega áhugavert er að 66% af þeim sem útskrifuðust hækkuðu lífsgæði sín umtalsvert samkvæmt mælitækinu Heilsutengd lífsgæði, eða um 12.2 að meðaltali (0-100) þar sem “eðlileg” lífsgæði eru talin 50. Í raun og veru voru það mun fleiri þar sem talsverður hópur er á einhverfurófi og mælast því ekki sambærilegar breytingar hjá þeim.

Samtals voru 134 einstaklingar í endurhæfingu árið 2022.  Virkir einstaklingar í endurhæfingunni voru að meðaltali 87 hverju sinni. Meirihlutinn var ungt fólk 30 ára og yngra eða 75%. Meðalaldur var 26.9 ár (SF 6.5), miðgildi 26 ár (dreifing 18.0–53.0). Allir voru með að minnsta kosti eina geðræna ICD-10 greiningu og flestir með þung geðræn vandamál.

  • 48,5% höfðu notað vímuefni áður en þeir byrjuðu í starfsendurhæfingunni.
  • 23% voru með börn á framfærslu.
  • 93% voru einhleypir.
  • 26,3 mánuður var að meðaltali liðinn frá vinnu í upphafi endurhæfingar, hjá þeim þátttakendum sem höfðu atvinnusögu.

68 þátttakendur útskrifuðust á árinu og fóru 52% þeirra í atvinnu, nám eða virka atvinnuleit.

Scroll to Top