Janus endurhæfing leitar nú að öflugu starfsfólki í tvær lausar stöður. Annars vegar er laus staða tengiliðs og hins vegar er leitað eftir leiðbeinanda í handverki. Sjá nánar um störfin hér fyrir neðan.
Laus staða tengiliðs
Janus endurhæfing leitar að öflugum fagaðila til að sinna starfi tengiliðs. Um er að ræða krefjandi, fjölbreytt og spennandi starf í starfsumhverfi sem leggur áherslu á fagmennsku, áreiðanleika og jákvæðni. Leitað er að fagaðila með menntun og færni sem er tilbúinn að takast á við fjölþætt verkefni með einstaklingum í endurhæfingu. Um er að ræða fullt starf.
Helstu verkþættir og ábyrgð
- Vinna sjálfstætt út frá fagþekkingu sinni í nánu samstarfi við þverfaglegt teymi.
- Hafa umsjón með endurhæfingarferli þátttakenda í samstarfi við aðra starfsmenn teymisins.
- Veita þátttakendum ráðgjöf, fræðslu og stuðning til að fylgja markmiðum þeirra í endurhæfingunni eftir.
- Taka þátt í þróun fræðsluefnis og halda námskeið fyrir þátttakendur.
- Yfirsýn og utanumhald kringum sinn þátttakendahóp.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsréttindi á Íslandi í iðjuþjálfun, félagsráðgjöf, þroskaþjálfun eða hjúkrun.
- Viðkomandi þarf að hafa góða samskiptahæfileika, vera skipulagður, sjálfstæður í vinnubrögðum og geta unnið í þverfaglegu teymi.
- Æskilegt er að viðkomandi hafi áhuga á að koma að uppbyggingu innan endurhæfingar og sé óhræddur við að takast á við ný og krefjandi verkefni.
- Gott vald á íslensku og tölvulæsi er nauðsynlegt þar sem öll skráning og skýrslugerð fer fram á rafrænu formi.
- Hreint sakavottorð
Janus endurhæfing er fyrirtæki sem sinnir endurhæfingu. Markmið starfseminnar er að efla heilsu og virkni fólks til að fyrirbyggja varanlega örorku, komast í nám og/eða vinnu. Í Janusi endurhæfingu starfar um 20 manna samhentur þverfaglegur hópur heilbrigðisstarfsmanna og fleiri stétta. Þátttakendur í endurhæfingu eru um 80 manns á hverjum tíma. Flestir á aldrinum 18-30 ára.
Janus endurhæfing hefur starfað frá árinu 2000 og skapað sér sess innan síns sérsviðs. Rík áhersla er lögð á að virkja styrkleika hvers og eins starfsmanns þannig að allir njóti sín og líði sem best í starfi enda teljum við það forsendu þess árangurs sem við stefnum að. Janus endurhæfing hefur innleitt styttingu vinnuvikunnar.
Frekari upplýsingar um starfsemina er hægt að nálgast á heimasíðu Janusar endurhæfingar, www.janus.is.
Umsóknarfrestur er til 30. nóvember 2023. Sótt er um í gegnum Alfreð.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Siggeirsdóttir framkvæmdastjóri, gegnum netfangið; kristin@janus.is eða í síma 514-9175.
Öllum umsóknum verður svarað.
Laus staða leiðbeinanda í handverki
Janus endurhæfing leitar að öflugum aðila til að sinna starfi leiðbeinanda í handverki í 75-100% starfshlutfalli.
Janus endurhæfing býður uppá
- Tækifæri til að taka þátt í og hafa áhrif á uppbyggingu og þróun handverks og listsköpunar og nýtingu þess í endurhæfingu
- Þverfaglega samvinnu með metnaðarfullu starfsfólki varðandi handverk og listsköpun í endurhæfingu
Helstu verkefni leiðbeinenda hjá Janusi endurhæfingu
- Skipulagning og utanumhald handverks- og listsköpunar námskeiða fyrir þátttakendur í endurhæfingu
- Utanumhald og skipulagning á efnivið og verkfærum sem nýtt eru í handverkinu
- Valdeflandi nálgun/endurhæfing í formi virkni gegnum handverk og listsköpun
- Námskeiðahald í handverki og listsköpun fyrir þátttakendur
- Samstarf við aðila utan Janusar endurhæfingar þegar þess er þörf
- Þverfagleg samvinna
Hæfnikröfur
- Reynsla og/eða menntun sem nýtist í starfi
- Þekking, reynsla og áhugi á einstaklingsmiðaðri meðferðarvinnu við handverk og/eða endurhæfingu er kostur
- Frumkvæði í starfi og skipulagshæfileikar
- Jákvætt viðmót og leikni í mannlegum samskiptum
- Nauðsynlegt að geta unnið sjálfstætt og í teymi með öðrum
- Hreint sakavottorð
- Almenn tölvukunnátta
Janus endurhæfing er fyrirtæki sem sinnir endurhæfingu. Markmið starfseminnar er að efla heilsu og virkni fólks til að fyrirbyggja varanlega örorku, komast í nám og/eða vinnu. Í Janusi endurhæfingu starfar um 20 manna samhentur þverfaglegur hópur heilbrigðisstarfsmanna og fleiri stétta. Þátttakendur í endurhæfingu eru um 80 manns á hverjum tíma. Flestir á aldrinum 18-30 ára.
Janus endurhæfing hefur starfað frá árinu 2000 og skapað sér sess innan síns sérsviðs. Rík áhersla er lögð á að virkja styrkleika hvers og eins starfsmanns þannig að allir njóti sín og líði sem best í starfi enda teljum við það forsendu þess árangurs sem við stefnum að. Janus endurhæfing hefur innleitt styttingu vinnuvikunnar.
Umsóknarfrestur er til 30. nóvember. Sótt er um í gegnum Alfreð.
Frekari upplýsingar um starfsemina er hægt að nálgast á heimasíðu Janusar endurhæfingar, www.janus.is.
Nánari upplýsingar Hrefna Þórðardóttir, fagstjóri, gegnum netfangið; hrefna@janus.is eða í síma 514-9175.
Öllum umsóknum verður svarað.