Ullarþæfing

15. ágúst – 19. september

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Markmið námskeiðsins er að bjóða upp á streitulosandi handavinnu í notalegu umhverfi og einnig að skapa tækifæri til að vinna í samfélagi við aðra og virkja áhugahvöt hvers og eins og sköpunargleði. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar.

  • Mánudaga kl. 9.00 – 11.30 (2. hæð Miðja)

Á námskeiðinu munum við vinna með íslenska ull, farið verður yfir grunn í blautullarþæfingu.

Við munum hanna og búa til gólfpullu, töskur, hatta, trefla og ýmislegt fleira.

Námskeiðið er opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Halldór Bjarki Ipsen og Þórhildur Kristjánsdóttir.

Scroll to Top