Tæknihornið (fjarfræðsla)

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Föstudaginn 26. febrúar hefst námskeiðið Tæknihornið. Námskeiðið verður haldið föstudaga frá kl. 13:00 til 14:00 í fjarfræðslu og er ætlað öllum þátttakendum Janusar endurhæfingar. Markmið námskeiðsins er að vekja áhuga þátttakenda á samspili hönnunar og tækni.

  • Föstudaga kl. 13:00-14:00 (Fjarfræðsla)

Í upphafi námskeiðs verður kennt á Inkscape, sem er forrit til að teikna og hanna hluti á vektor formi sem síðan verða skornir út í laser skera. Í seinnihluti námskeiðs verður kynnt fyrir þátttakendum Tinkercad og nýting þess til að prenta í þrívídd.

Dæmi um verkefni sem verða gerð:

  • farsímastandur,
  • box
  • lyklakippa

Námskeiðið er lokaður hópur og geta þátttakendur ekki skráð sig hvenær sem er á tímabilinu. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Benjamín Júlíusson og Steinberg Þórarinsson.

Scroll to Top