Saumavél 101 og 201

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Markmið námskeiðsins er að bjóða upp á streitulosandi handavinnu í notalegu umhverfi og einnig að skapa tækifæri til að vinna í samfélagi við aðra og virkja áhugahvöt hvers og eins og sköpunargleði.

  • Þriðjudaga kl. 9.00 – 11.30 (2. hæð Miðja)

Saumavél 101. Þar verður farið í grunninn á að vinna með saumavél, gerðir verða auðveldir æfingasaumar og byrjendastykki sem verður púði.

Saumavél 201. Þar mun bjóðast að gera flóknari verkefni.

Allir munu byrja á að sauma púða.

Listmunir sem skapaðir verða á námskeiðinu verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar. Allur ágóðinn af sölunni rennur beint í sjóðinn og nýtist þannig þeim þátttakendum sem eru í fjárhagslegri neyð, sjá nánar á heimasíðu Janusar endurhæfingar.

Þátttakendur mega velja og eiga einn listmun á önn af öllum þeim listmunum sem þeir framleiða í iðjunni, á meðan að þeir eru í endurhæfingunni og taka þátt í listmunasköpun innan Janusar endurhæfingar. Allir aðrir listmunirnir þátttakenda „ganga til góðs“, þ.e.a.s. verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar.

Námskeiðið verður opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinandi verður Sigríður Hannesdóttir og Þórhildur Kristjánsdóttir.

Scroll to Top