Rútína í daglegu lífi – fræðsla iðjuþjálfa

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Fræðsla varðandi þá þætti sem þarf að hafa í huga þegar verið er að búa til rútínu í daglegu lífi, verkleg kennsla hvernig hægt er að byggja upp rútínu og þátttakendur hvattir til að finna hvaða aðferðir henta þeim best.

  • Mánudaga kl. 13.00 – 15.00

Fræðsla varðandi þá þætti sem geta haft áhrif á daglegt líf þegar verið er að koma góðum venjum upp í rútínu. Farið yfir hvað þarf að hafa í huga t.d. varðandi að koma sér upp rútínu, takast á við frestun og forðun, hvaða áhrif samfélagsmiðlar geta haft. Farið verður í tímastjórnun og markmiðasetningu. Einnig byggist fræðslan upp á vinnustofu sem hvetur til þess að prófa ýmsar aðferðir við að minna sig á, setja upp rútínu og halda utan um daglegt líf.

Námskeiðið verður opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Berglind Ásgeirsdóttir, Lena Rut Olsen og Sigrún Ólafsdóttir.

Scroll to Top