Peningarnir mínir

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

4.apríl – 16.maí (5 skipti)

Markmið námskeiðsins er að efla þátttakendur Janusar endurhæfingar í að takast á við eigin fjármál. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar. 

  • Fimmtudaga kl. 13.00 – 15.00 (4. hæð)

Á námskeiðinu verður farið í eftirfarandi viðfangsefni;

– Fjármálalæsi

– Sjálfshjálp í fjármálum

– Áhrif fjármála á líðan

– Fjármálahegðun

– Sjálfsstjórn í fjármálum

– Úrræði vegna fjármálavanda

– Að setja sér markmið í fjármálum

Námskeiðið mun innihalda fræðslu, verkefni, umræður og myndbönd. 

Námskeiðið er opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Elsa Guðrún Sveinsdóttir og S. Anna Einarsdóttir.

Scroll to Top