Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar.
5.apríl – 17.maí
Markmið námskeiðsins er að þjálfa aukna færni í núvitund. Læra leiðir til þess að ná betri stjórn á hugsunum og fá innsýn í líðan sína. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar.
- Föstudaga kl. 11.30 – 12.00 (fjarfræðsla)
Boðið verður upp á núvitundaræfingar undir leiðsögn. Þátttakendur fá sendan link á netfangið sitt klukkutíma áður en æfingin hefst. Hægt er að fylgjast með í gegnum síma eða tölvu þó að mælt sé með því síðarnefnda.
Námskeiðið er opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinandi verður Elsa Sveinsdóttir.