Gerum upp húsgögn

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Markmið námskeiðsins er að læra að endurnýja notuð eða veðruð húsgögn og á sama tíma leyfa listrænum hæfileikum þínum að blómstra. Einnig að skapa tækifæri til að vinna í samfélagi við aðra og virkja áhugahvöt hvers og eins og sköpunargleði.

  • Þriðjudagar kl. 13.00 – 15.30 (2. hæð vestur)

Á námskeiðinu er endurnýting í hávegum höfð. Við tökum notuð húsgögn og gefum þeim „nýtt líf“ með því að mála í alls konar stíl og skrifa eða myndskreyta með alls konar stenslum og veggfóðri ef óskast. Þátttakendur velja sér húsgögn sem verða á námskeiðinu, stór eða smá, og fá að pússa eftir þörfum og leyfa sköpunargleðinni að njóta sín.

Listmunir sem skapaðir verða á námskeiðinu verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar. Allur ágóðinn af sölunni rennur beint í sjóðinn og nýtist þannig þeim þátttakendum sem eru í fjárhagslegri neyð, sjá nánar á heimasíðu Janusar endurhæfingar.

Þátttakendur mega velja og eiga einn listmun á önn af öllum þeim listmunum sem þeir framleiða í iðjunni, á meðan að þeir eru í endurhæfingunni og taka þátt í listmunasköpun innan Janusar endurhæfingar. Allir aðrir listmunirnir þátttakenda „ganga til góðs“, þ.e.a.s. verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar.

Námskeiðið verður opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Halldór Bjarki Ipsen og Þórhildur Kristjánsdóttir.

Scroll to Top