DAM færnihópur – Streituþol

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar sem hafa lokið DAM færniþjálfun í núvitund og tilfinningastjórn eða annað sambærilegt.

Að gangast við ástandinu eins og það er (radical acceptance). Læra að nota streituþolsfærni á erfiðum stundum.

  • Mánudaga kl. 9.00 – 11.30 (4. hæð)

Streituþol er einn fjögurra færniþátta úr Díalektískri atferlismeðferð (DAM). Færniþjálfunin er eins konar skyndihjálp þar sem kenndar eru aðferðir til að sefa erfiðar tilfinningar um stundar sakir svo hægt sé að beita hjálplegri leiðum í framhaldi. Gerðar verða núvitundaræfingar og verkefni í tímum.

Streituþolsfærni skiptist í tvo þætti annars vegar að þola við í erfiðum aðstæðum og tilfinningum án þess að gera þær verri og hins vegar að læra að gangast við raunveruleikanum eins og hann er í raun og veru.

Til að geta skráð sig í DAM Streituþol þá þarf þátttakandi að hafa lokið DAM færniþjálfun í núvitund og tilfinningastjórn, eða annað sambærilegt.

Mæting er mikilvæg, ef að þátttakandi missir af tveimur tímum í röð eða þremur í heildina þá verður viðkomandi þáttakandi afskráður. Þeir sem ljúka námskeiðinu eiga möguleika á að velja sér smá verðlaun í lok námskeiðs.

Námskeiðið verður lokaður hópur og verður ekki hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Jón Hjalti Brynjólfsson og Linda Ólafsdóttir.

Scroll to Top