DAM færnihópur – Samskiptafærni

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Mánudaginn 1. mars hefst DAM-samskiptafærni.

  • Mánudaga kl. 13.00-15.00 (4. hæð)

Samskiptafærni er einn fjögurra færniþátta úr Díalektískri atferlismeðferð (DAM). Á námskeiðinu verður lögð er áhersla á að þjálfa og auka færni í samskiptum. Til að ná fram markmiðum sínum þurfa þátttakendur að þekkja og tileinka sér færniþætti og að þjálfast í sjálfstyrkingu og ákveðni. Búist er við að þátttakendur læri hvor af öðrum með góðum umræðum og æfingum sem gerðar eru í tíma og með gerð heimaverkefna. 

Námskeiðið er gagnlegt fyrir flest alla en gagnast einstaklega vel fyrir þá sem hafa gengið í gegnum erfiða lífsreynslu og áföll. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist betri samskiptafærni með því að taka eftir samskiptavanda og nota DAM færniþætti til breytinga.

Námskeiðið verður lokaður hópur og verður ekki hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Linda Ólafs og Jón Hjalti.

Scroll to Top