Búum til skilti og veggskraut

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar.

Föstudaginn 26. febrúar hefst námskeiðið Búum til skilti og veggskraut. Aðalmarkmið námskeiðsins er að gefa sköpunargleðinni lausan tauminn í skiltagerðinni og einnig að skapa tækifæri til að vinna í samfélagi við aðra og virkja áhugahvöt hvers og eins og sköpunargleði.

  • Föstudaga kl. 9.00 – 11.30

Á námskeiðinu verða búin til skilti úr viðar pallettum og plöttum. Þátttakendur fá að hanna ýmist húsnúmers skilti, sumarbústaða skilti eða heimilis skilti/veggskraut. Notast má við servíettur og Mod Podge lím, mikið úrval af stenslum til að stafa og myndskreyta með og akríl málningu. Stefnum á að framleiða skilti sem prýða garðinn, sumarbústaðinn eða grillveisluna.

Vörurnar verða síðan seldar og mun allur ágóðinn af þeim renna í Styrktarsjóð Janusar endurhæfingar og nýtast þeim sem eru í fjárhagslegri neyð, sjá nánar á heimasíðu Janusar endurhæfingar.

Námskeiðið er opinn hópur og geta þátttakendur skráð sig hvenær sem er á tímabilinu. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Halldór Bjarki og Sigríður Hannesdóttir.

Scroll to Top