Að skapa sér sitt eigið Óskaspjald. Hvar vil ég sjá mig vera í mínu lífi?

Markmiðið er að setja sér stefnu og gera stefnuna sýnilegri. Hafa gaman saman og að njóta um leið og við upplifum jákvæða styrkingu í félagsfærni og sköpun.

Þriðjudaginn 4. desember kl. 13.00 – 15.30

Árinu 2021 er að ljúka og nýtt ár 2022 er að líta dagsins ljós.

  • Hvar vilt þú vera í lok árs 2022?
  • Hver vilt þú vera í lok árs 2022?
  • Hvað vilt þú uppskera á árinu 2022?

Get ég haft áhrif á framtíð mína með Óskaspjaldi?

Við leyfum okkur að dreyma án nokkurra takmarka og setja drauminn fram á spjaldi og skýra þannig stefnuna okkar og horfum  þannig fram í tímann. Hvar viljum við sjá okkur. Við flettum blöðum, klippum út það sem grípur okkur þar, setjum það fram sem óskir og límum þær á spjald og búum okkur þannig til okkar eigið Óskaspjald fyrir árið 2022. Að hugsa myndrænt er ein leið til að vinna að markmiðum sínum.  Leið sem er sjónræn og minnir okkur á markmiðin okkar. Allar breytingar byrja á okkar eigin vitund og sýn !

Scroll to Top