Árangur Janusar endurhæfingar
2023
Starfsemin skilaði framúrskarandi árangri árið 2023 þar sem hvorki meira né minna en 68% þátttakenda fóru aftur í vinnu, nám eða virka atvinnuleit, þrátt fyrir þung geðræn vandamál.Samtals voru 86 einstaklingar starfsendurhæfingu árið 2023, sjá nánar töflu 1. Virkir einstaklingar í endurhæfingunni voru að meðaltali 51 hverju sinni (pláss keypt af Virk starfsendurhæfingarsjóði og Sjúkratryggingum). Meirihlutinn var ungt fólk 30 ára og yngra eða 84%. Meðalaldur var 26 ár (SF 6.5), miðgildi 25 ár (dreifing 18.0 – 45.0). Allir voru með að minnsta kosti eina geðræna ICD-10 greiningu og flestir með þung geðræn vandamál.
Einn einstaklingur kom aðeins í mati á möguleikum til starfsendurhæfingar og er því ekki tekninn með í útreikningana.
Hér má sjá ársskýrslu Janusar endurhæfingar
Einn einstaklingur kom aðeins í mati á möguleikum til starfsendurhæfingar og er því ekki tekninn með í útreikningana.
- 40% höfðu notað vímuefni áður en þeir byrjuðu í Janusi endurhæfingu.
- 17% voru með börn á framfærslu.
- 94% voru einhleypir.
- 24 mánuður var að meðaltali liðinn frá vinnu í upphafi endurhæfingar, hjá þeim þátttakendum sem höfðu atvinnusögu.
- 50 einstaklingar útskrifuðust úr endurhæfingarþjónustu á tímabilinu.
Hér má sjá ársskýrslu Janusar endurhæfingar
2022
Starfsemin skilaði framúrskarandi árangri eins og endranær árið 2022 en 52% þátttakenda fóru aftur í vinnu, nám eða virka atvinnuleit, þrátt fyrir þung geðræn vandamál.
Sérlega áhugavert er að 66% af þeim sem útskrifuðust hækkuðu lífsgæði sín umtalsvert samkvæmt mælitækinu Heilsutengd lífsgæði, eða um 12.2 að meðaltali (0-100) þar sem “eðlileg” lífsgæði eru talin 50. Í raun og veru voru það mun fleiri þar sem talsverður hópur er á einhverfurófi og mælast því ekki sambærilegar breytingar hjá þeim.Samtals voru 134 einstaklingar í endurhæfingu árið 2022. Virkir einstaklingar í endurhæfingunni voru að meðaltali 87 hverju sinni. Meirihlutinn var ungt fólk 30 ára og yngra eða 75%. Meðalaldur var 26.9 ár (SF 6.5), miðgildi 26 ár (dreifing 18.0–53.0). Allir voru með að minnsta kosti eina geðræna ICD-10 greiningu og flestir með þung geðræn vandamál.Tveir einstaklingar komu aðeins í mati á möguleikum til starfsendurhæfingar og eru því ekki teknir með í útreikningunum.

- 48,5% höfðu notað vímuefni áður en þeir byrjuðu í starfsendurhæfingunni.
- 23% voru með börn á framfærslu.
- 93% voru einhleypir.
- 26.27 mánuður var að meðaltali liðinn frá vinnu í upphafi endurhæfingar, hjá þeim þátttakendum sem höfðu atvinnusögu.
- 68 þátttakendur útskrifuðust á árinu og fóru 52% þeirra í atvinnu, nám eða virka atvinnuleit.
2021
Starfsemin skilaði framúrskarandi árangri eins og endranær árið 2021 en 52% þátttakenda fóru aftur í vinnu, nám eða virka atvinnuleit, þrátt fyrir þung geðræn vandamál og COVID ástand í samfélaginu.Sérlega áhugavert er að 64% af þeim sem útskrifuðust hækkuðu lífsgæði sín umtalsvert samkvæmt mælitækinu Heilsutengd lífsgæði, eða um 14.5 (0-100) þar sem “eðlileg” lífsgæði eru talin 50. Í raun og veru voru það mun fleiri þar sem talsverður hópur er á einhverfurófi og mælast því ekki sambærilegar breytingar hjá þeim.Samtals voru 191 einstaklingur í endurhæfingu árið 2021. Virkir einstaklingar í endurhæfingunni voru að meðaltali 99 hverju sinni. Meirihlutinn var ungt fólk 30 ára og yngra eða 72%. Meðalaldur var 27 ár (SF 6.6), miðgildi 26 ár (dreifing 18.0–53.0). 98% voru með að minnsta kosti eina geðræna ICD-10 greiningu og flestir með þung geðræn vandamál.Fjórir einstaklingar komu aðeins í mati á möguleikum til starfsendurhæfingar og eru því ekki teknir með í útreikningunum.
- 48% höfðu notað vímuefni áður en þeir byrjuðu í starfsendurhæfingunni.
- 33% voru með börn á framfærslu.
- 86% voru einhleypir.
- 8 mánuðir voru að meðaltali liðnir frá vinnu í upphafi endurhæfingarinnar hjá þeim einstaklingum sem höfðu atvinnusögu.
- 92 þátttakendur útskrifuðust á árinu og fóru 52% þeirra í atvinnu, nám eða virka atvinnuleit.
2020
Mjög góður árangur var árið 2020. Hvorki meira né minna en 57,4% þátttakenda sem útskrifuðust á árinu fóru í vinnu, nám eða virka atvinnuleit.Meirihluti einstaklinga sem sóttu þjónustu á árinu var ungt fólk 30 ára og yngri (72%). Meðalaldur var 27,8 ár (SF 7.4), miðgildi 26 ár (dreifing 18.0–60.0). 99% voru með að minnsta kosti eina geðræna ICD-10 greiningu og flestir með þung geðræn vandamál.Samtals voru 218 einstaklingar í starfsendurhæfingu árið 2020. Konur voru í meirihluta eða 60%. Virkir einstaklingar í endurhæfingunni voru að meðaltali 127 hverju sinni. 9 einstaklingar komu aðeins í mati á möguleikum til starfsendurhæfingar og eru því ekki teknir með í útreikningunum.
- 52% höfðu notað vímuefni áður en þeir byrjuðu í starfsendurhæfingunni.
- 33.5% voru með börn á framfærslu.
- 76% voru einhleypir.
- 21.3 mánuðir voru að meðaltali liðnir frá vinnu í upphafi endurhæfingarinnar hjá þeim einstaklingum sem höfðu atvinnusögu.
- 115 þátttakendur útskrifuðust á árinu og fóru 57,4% þeirra í atvinnu, nám eða virka atvinnuleit