Vísindagreinar og ítarefni á PDF

Conceptual Biophilic Design In Landscape Architecture - 2021

Ánægjulegt er að greina frá því að fyrsta vísindagrein sem Janus endurhæfing á aðkomu að varðandi endurhæfingu út í náttúrunni fékkst samþykkt ti birtingar í ágúst 2021. 

Fjallað er um vísindalega uppbyggingu og skipulag náttúruheilsugarðs sem verður að Hrafnhólum undir Móskarðshnjúkum sem er í u.þ.b. 25 mín akstri frá Reykjavík. Þar mun fara fram læknisfræðileg starfsendurhæfing í samvinnu við núttúruna, umhverfi og dýralíf. Frá árinu 2004 hefur Janus endurhæfing unnið að undirbúningi þessarar náttúrutengdu endurhæfingar með Önnu Maríu Pálsdóttur Phd, Arnóri Víkingssyni og Vilmundi Guðnasyni Phd. Styttist nú í að þessi tímamóta endurhæfing verði að veruleika. Endurhæfing byggð á sannreyndum aðferðum aðlöguð að íslensku samfélagi og náttúru. 

Með góðfúslegu leyfi AHTA Journal of Therapeutic Horticulture fær Janus endurhæfing að birta greinina á heimasíðu okkar. Hægt er að nálgast hana hér.

Getur gervigreind gert endurhæfingu skilvirkari? - 2019

Ánægjulegt er að greina frá því að ný vísindagrein frá Janusi endurhæfingu er birt í Læknablaði júní mánaðar.

Eftirfarandi er ágrip greinarinnar:
Eftirspurn eftir starfsendurhæfingu á Íslandi hefur aukist síðastliðin ár og aðsókn ungs fólks þar hlutfallslega mest. Miklu máli skiptir að fjármunum samfélagsins sé vel varið án þess að gæði og þjónusta skerðist. Sú spurning vaknar því hvort gervigreind geti stuðlað að aukinni skilvirkni þessa geira. Nýsköpunarverkefni um þróun, prófun og innleiðingu á gervigreindarhugbúnaðinum Völvunni var innleitt í starfsemi Janusar endurhæfingar. Spár Völvunnar gefa meðal annars vísbendingar um hvar einstaklingur gæti hugsanlega þurft aðstoð og gefa sérfræðingum tækifæri til að bregðast við og gera viðeigandi ráðstafanir í meðferð. Nákvæmni, næmi og hittni Völvunnar hefur reynst vera framúrskarandi í tveimur rannsóknum þar sem tekist hefur að koma auga á dulin mynstur í aðstæðum skjólstæðinga sem gætu haft áhrif á endurhæfingarferlið. Völvan virðist því lofa góðu sem verkfæri í einstaklingsmiðaðri endurhæfingu þar sem fólk glímir við þung og flókin vandamál. Innan Janusar endurhæfingar er verið að innleiða Völvuna sem hlutlausan teymismeðlim. Markmið greinarinnar er að kynna Völvuna og rannsóknir tengdar henni.

Predicting Changes in Quality of Life for Patients in Vocational Rehabilitation - 2018

Ný vísindagrein Predicting Changes in Quality of Life for Patients in Vocational Rehabilitation hefur verið birt frá Janusi endurhæfingu. Niðurstöður rannsóknarinnar voru kynntar á ráðstefnunni IEEE Conference on Evolving and Adaptive Intelligent Systems EAIS 2018 í lok maí mánaðar.

Rannsóknarspurningin var hvort hægt sé að spá fyrirfram, með því að nýta gervigreind, um niðustöður næstu mælinga mælitækisins heilsutengdra lífsgæða. Niðurstaðan er að það er hægt og að jafnaði 6 mánuðum áður en spurningarlistanum er svarað.

Þessi niðurstaða er hugsanlega enn einn liðurinn í því að geta veitt einstaklingum sem á þurfa að halda betri endurhæfingu, opnar möguleika á því að grípa fyrr inn í. Fyrir áhugasama er hægt að nálgast greinina hér.

Hlutverk sjúkraþjálfara í einstaklingsmiðaðri starfsendurhæfingu. - 2018

Ný vísindagrein hefur verið birt frá Janusi endurhæfingu Janus endurhæfing, hlutverk sjúkraþjálfara í einstaklingsmiðaðri starfsendurhæfingu.

Eftirfarandi er ágrip greinarinnar:
Janus endurhæfing er læknisfræðileg starfs- og atvinnuendurhæfing þar sem þverfaglegt teymi sérfræðinga aðstoða þátttakendur aftur út á vinnumarkaðinn. Flestir þátttakendur glíma við flókin og fjölþætt vandamál bæði andleg og/eða líkamleg. Þeir þarfnast starfsendurhæfingar sem er aðlöguð að mismunandi þörfum þeirra. Starfsemin tekur tillit til þessara þarfa meðal annars með því að bjóða upp á mismundandi brautir. Þróun hefur átt sér stað innan starfseminnar meðal annars er fyrirtækið brautryðjandi í notkun gervigreindar innan starfsendurhæfingar. Hlutverk sjúkraþjálfara í endurhæfingunni hefur þróast í takt við breytta tíma, en snýr í dag að mestum hluta að fræðslu og þjálfun í hóp, auk einstaklingsmeðferða.

The Use of Predictive Models in Dynamic Treatment Planning - 2017

Ég held að þetta verði að teljast mjög góður árangur, á ekki lengri tíma og hlýtur að virka sem hvatning á okkur sem störfum hjá Janus Endurhæfingu og þá aðila sem við störfum fyrir. Þetta segir Kristín Siggeirsdóttir hjá Janus Endurhæfingu í viðtali við Fréttablað Eflingar, en af 60 einstaklingum sem farið hafa í atvinnuendurhæfingu frá árinu 2000, hafa 15 náð þeim árangri að komast aftur í vinnu, einn er á vernduðum vinnustað og 8 eru í námi. Við spyrjum Kristínu nánar um Janus Endurhæfingu og þetta mikilvæga verkefni.

Fixing Bugs in Your Sleep: How Genetic Improvement Became an Overnight Success - 2017

Fixing Bugs in Your Sleep: How Genetic Improvement Became an Overnight Success er nú aðgengileg á netinu. Mikill áhugi hefur skapast kringum þróunina á Janus Manager sem er sérhannað tölvukerfi Janusar endurhæfingar og heldur utan um alla starfsemina. Þessi vísindagrein er afrakstur þróunarinnar og er sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum þar sem Genetic Improvement of Software er notað í lifandi tölvukerfi. Greinin var kynnt og hlaut verðlaun á málþingi á GECCO 2017 í Berlin.

The Use of Automatic Test Data Generation for Genetic Improvement in a Live System - 2017

The Use of Automatic Test Data Generation for Genetic Improvement in a Live System er vísindagrein sem fjallar um uppbyggingu og þróun á Janus Manager, sem er sérhannað tölvukerfi Janusar endurhæfingar. Greinin var kynnt á ráðstefnunni SBST í Argentínu 2017

Determinants of outcome of vocational rehabilitation - 2016

Í lok ársins 2016 birtist vísindagrein frá Janusi endurhæfingu í kandadíska vísindatímaritinu Work. Greinin heitir Determinants of outcome of vocational rehabilitation.

Starfsendurhæfing: Geðræn vandamál og félagsráðgjöf - 2014

Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.A. prófs í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Markmið ritgerðarinnar er að athuga hvernig félagsráðgjafar starfa innan starfsendurhæfingar og hvernig starfsendurhæfing nýtist einstaklingum með geðræn vandamál. 
Eldra efni er ekki aðgengilegt á vefnum en hægt er að hafa samband við skrifstofu Janusar upp á aðgengi að eldri greinum.
Leit