Yfirlýsing frá stjórn Janusar endurhæfingar

Sérhæft geðendurhæfingarúrræði fyrir ungt fólk, 18 ára+, lokar 1. júní 2025

Það er þyngra en tárum taki að tilkynna að Janus endurhæfing neyðist til að leggja niður þverfaglega læknisfræðilega heildræna geðendurhæfingu 1. júní næstkomandi. Úrræðið er sérhæft fyrir ungt fólk, 18 ára og eldra. Nauðsynlegt fjármagn fæst ekki til að veita  endurhæfinguna áfram og  af þeim sökum hefur erfið ákvörðun verið tekin. Hópuppsögn, öllu starfsfólki sagt upp.    

Stjórn Janusar endurhæfingar harmar ákvörðun ríkisstjórnarinnar og stjórnvalda. Það er öllum ljóst að þörfin fyrir sérhæft úrræði, ætlað ungum fullorðnum, er mikil enda er um að ræða jaðarsettan og afar viðkvæman hóp.     

Sérhæfing Janusar endurhæfingar hefur byggst upp á síðastliðnum 25 árum og ómetanleg þekking orðið til. Endurhæfingin er alfarið einstaklingsmiðuð. Hverjum og einum  er mætt þar sem hann er staddur. Í endurhæfingunni er ungt fólk með langa sögu um geðræna erfiðleika. Margir eru með taugaþroskaröskun og oft mikla áfallasögu að baki. Þeim er tryggður aðgangur að geðlækni, sálfræðingum, iðjuþjálfum, félagsráðgjöfum og ýmsum fleiri sérhæfðum fagaðilum undir sama þaki.  Yfir 55% þeirra sem hafa útskrifast frá okkur síðastliðin 3 ár hafa náð árangri með því að fara í vinnu, nám eða í virka sannanlega atvinnuleit. Tugir ungra fullorðinna eru á biðlista eftir að komast í endurhæfinguna.    

Stjórn Janusar endurhæfingar telur ákvörðun ríkistjórnarinnar og stjórnvalda ganga í berhögg við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar en þar segir m.a. að:  ,,Sérstök áhersla verður lögð á að ...., auka aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu......“ Þessi ákvörðun mun leiða til að ómetanleg þekking og endurhæfingargeta fyrir þennan jaðarsetta hóp tapast. Endurhæfingargeta sem aldrei hefur verið meiri þörf á en einmitt nú. 

Sett inn 3.mars 2025
Leit