Upplýsingar vegna tilvísana

Heimilislæknar, félagsþjónustan, geðheilsuteymi heilsugæslunnar og geðdeild Landspítalans geta sótt um ef viðkomandi er á aldrinum 18-30 ára. Tilvísunin er send til Virk starfsendurhæfingarsjóðs. Nauðsynlegt er að merkja tilvísunina ”NEET” og biðja um að tilvísunin sé skoðuð með það í huga hvort endurhæfing innan Janusar endurhæfingar henti. Við hér í Janusi endurhæfingu höfum ekki aðgang að þeim tilvísunum sem berast eða komum að úrvinnslu þeirra og höfum ekki áhrif á hverjir komast inn í endurhæfingu til okkar.

Ef frekari upplýsinga er óskað, er velkomið að hafa samband við okkur í síma 514 9175.
Leit