Sölusíða styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar

Okkur er sönn ánægja að kynna að nú hefur farið í loftið ný sölusíða styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar. Við hvetjum alla til að skoða síðuna hér.
Vinnan við uppsetningu sölusíðunnar var samstarfsverkefni þátttakenda Janusar endurhæfingar og starfsfólks. Hæfileikar þátttakenda nutu sín vel í hinum ýmsu verkefnum svo sem ljósmyndun, framsetningu á efni og samvinnu sem fylgir vefsíðugerð.

Styrktarsjóður Janusar endurhæfingar var stofnaður í apríl 2013 til að styrkja þátttakendur, sem eru í tímabundinni fjárhagslegri neyð eftir að fullreynt hefur verið að þeir fá ekki frekari fjárhagsaðstoð frá sveitarfélagi eða hinu opinbera.

Stofnfé sjóðsins er framlag stjórnar Janusar endurhæfingar ásamt tekjum af sölu í nóvember 2012.

Tekjur

Tekjur styrktarsjóðsins koma í dag mestmegnis af ágóða sem myndast við sölu vöruafurða. Uppbyggingarstarf sjóðsins byggir einnig á gjöfum og áheitum einstaklinga og fyrirtækja. Sú velvild skiptir afar miklu máli til að skapa þá umgjörð sem sjóðurinn starfar við í dag.

Bankareikningur Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar er hjá Íslandsbanka er númer 526-26-4907 kennitala 490713-0340. Þeir sem vilja styrkja sjóðinn er velkomið að leggja inn frjáls framlög á reikninginn.

Scroll to Top