Nýtt samvinnuverkefni – Ungir fullorðnir

Ungir fullorðnir er samvinnuverkefni Janusar endurhæfingar, Geðheilsuteyma heilsugæslunnar, geðdeilda Landspítalans, Þrautar og Önnu Maríu Jónsdóttur geðlæknis. Undirbúningur hófst árið 2018 og fyrstu þátttakendur verkefnisins hófu endurhæfingu hjá Janus endurhæfingu í ágúst 2021 en þá tók gildi þjónustusamningur milli Sjúkratrygginga Íslands og Janusar endurhæfingar varðandi verkefnið. Tilgangur verkefnisins er að byggja upp hæfingar- og endurhæfingarþjónustu fyrir unga fullorðna sem ekki hafa náð að fylgja jafnöldrum sínum í námi og/eða vinnu, m.a. vegna mikillar andlegrar vanlíðunar og/eða óhefðbundins taugaþroska.

Endurhæfingin felur m.a. í þverfaglegt sérhæft mat á stöðu og þörfum einstaklingsins og gerð einstaklingsmiðaðrar endurhæfingaráætlunar í samvinnu við teymisstjóra/tengilið einstaklingsins innan Janusar endurhæfingar.  

Í fyrstu er áhersla lögð á hæfingu, mótun og innleiðingu uppbyggilegrar daglegrar rútínu. Viðkomandi velur sér einnig í samráði við sinn teymisstjóra/tengilið fjölbreytt námskeið á vegum Janusar endurhæfingar og útbýr sína eigin stundaskrá.

Í framhaldinu tekur við tími endurhæfingar og meðferðar, með aðlöguðum stíganda í vali á meðferðarþáttum. Áhersla er einnig á stefnumótun og byrjað er að undirbúa næstu skref, sem t.d. eru í átt að námi eða atvinnu.

Að lokum tekur við eftirfylgni þar sem viðkomandi er studdur áfram ínní næsta skref sem gæti verið atvinna, nám og/eða tenging við aðra fagaðila. Áhersla er á að styðja við hinn unga fullorðna í að viðhalda stíganda og virkni í daglegu lífi sínu, nýta sér þau verkfæri sem hann hefur áunnið sér í endurhæfingunni um leið og viðkomandi tekst á við nýtt hlutverk í lífi sínu.

Scroll to Top