Ný vísindagrein frá Janusi endurhæfingu – Völvan

Ánægjulegt er að greina frá því að þið getið nálgast nýja vísindagrein frá Janusi endurhæfingu sem fjallar um árangur spálíkans okkar, völvunnar. Vísindagreinin nefnist The Use of Predictive Models in Dynamic Treatment Planning og verður kynnt á ICTS4eHealth ráðstefnunni, á Krít 3. júlí næstkomandi. Sannarlegur heiður er að hafa fengið greinina og kynninguna samþykkta, þar sem að samkeppnin var mikil. Þeir sem hafa áhuga á að sjá dagskránna geta smellt hér, margar áhugaverðar rannsóknir og nýjungar verða kynntar þar.

Hvað gerir völvan?

Völvan er spálíkan sem byggist á gervigreind, eitt fyrsta sinnar tegundar sem notað er í starfsendurhæfingu sem stuðningstæki fyrir starfsmenn. Áhrifaþáttum, sem gætu hugsanlega haft áhrif á árangurbrottfall og líklega endurhæfingarlengd er varpað upp hjá hverjum og einum einstaklingi. Tíu helstu þeirra eru dregnir fram af 160 ólíkum breytum og samspil þeirra sem eru ólíkt milli einstaklinga. Starfsmenn geta allt frá upphafi endurhæfingar skoðað spá einstaklingsins og fylgst síðan reglulega með henni þar sem spáin uppfærist reglulega. Þetta getur verið sérstaklega áhugavert þegar breytingar eiga sér stað ásamt því þegar mælitæki hafa verið tekin. Völvan er hlutlaus, enda byggist hún eingöngu á þeim gögnum sem fyrir liggja og  gerir starfsmönnum kleift að bregðast við fyrr en ella, þar sem erfitt og oft ómögulegt er að koma auga á áhrifaþætti og hvar/hvenær er mest þörf á að grípa inn í.

Búið er að sannreyna völvuna og fjallar ofangreind vísindagreinin um þær niðurstöður. Völvan sýndi framúrskarandi árangur, þar sem spáin náði allt að 100% nákvæmni. Vísindagreinin hefur skapað umtalsverða athygli þar sem þetta er í fyrsta skipti sem Genetic Improvement er notað í spálíkan, til þess að bæta nákvæmi líkansins. 

Þið getið nálgast greinina með því að smella hér eða á nafn greinarinnar hér að ofan. Vísindagreinin mun einnig birtast opin í IEEE Symposium on Computers and Communications eftir ráðstefnuna. 

Scroll to Top