Jóga
13.11.2019-18.12.2019
Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar.
Miðvikudaginn 13. nóv. hefst námskeiðið Jóga. Námskeiðið byggir á Hatha jóga, gerðar verða jógateygjur og léttar styrkjandi æfingar auk öndunaræfinga, sem stuðla að ró og núvitund. Námskeiðið er fyrir þátttakendur Janusar endurhæfingar og hentar bæði byrjendum og lengra komnum.
Jóga er góð leið til að tengjast líkama, öndun og huga. Hver tími endar á endurnærandi slökun. Markmið námskeiðsins er að öðlast þekkingu og reynslu á Hatha Jóga. Leið til þess að öðlast ró og tengingu við líkama sinn, huga og öndun, með öndunaræfingum, slökun og liðkandi og styrkjandi æfingum.
Námskeiðið er opinn hópur og geta þátttakendur skráð sig hvenær sem er á tímabilinu. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Umsjónarmenn eru Anna Heiða Óðinsdóttir, jógakennari og Berglind Ásgeirsdóttir iðjuþjálfi og jógakennari.