Sölusíða Janusar endurhæfingar?

Við hvetjum alla til að skoða sölusíðu okkar þar sem margir fallegir listmunir eru til sölu. Allur ágóði af sölu rennur í styrkarsjóð þátttakenda Janusar endurhæfingar. 

Um styrktarsjóð Janusar endurhæfingar

Sjóðurinn var stofnaður í apríl 2013 til að styrkja þátttakendur, sem eru í tímabundinni fjárhagslegri neyð, eftir að fullreynt hefur verið að þeir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá sveitarfélagi eða hinu opinbera.

Tekjur styrktarsjóðsins koma í dag mestmegnis af ágóða sem myndast við sölu á vörum sem þátttakendur búa til í endurhæfingunni. Um er að ræða bæði nytja- og listmuni. Uppbyggingarstarf sjóðsins byggir einnig á gjöfum og áheitum einstaklinga og fyrirtækja. Sú velvild skiptir afar miklu máli til að skapa þá umgjörð sem sjóðurinn starfar við í dag.

Bankareikningur Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar er hjá Íslandsbanka er númer 526-26-4907 kennitala 490713-0340. Þeir sem vilja styrkja sjóðinn er velkomið að leggja inn frjáls framlög á reikninginn.

Scroll to Top