Framúrskarandi árangur árið 2020

Mjög góður árangur var árið 2020. Hvorki meira né minna en 57,4% þátttakenda sem útskrifuðust á árinu fóru í vinnu, nám eða virka atvinnuleit.

Meirihluti einstaklinga sem sóttu þjónustu á árinu var ungt fólk 30 ára og yngri (72%). Meðalaldur var 27,8 ár (SF 7.4), miðgildi 26 ár (dreifing 18.0–60.0). 99% voru með að minnsta kosti eina geðræna ICD-10 greiningu og flestir með þung geðræn vandamál.

Samtals voru 218 einstaklingar í starfsendurhæfingu árið 2020. Konur voru í meirihluta eða 60%. Virkir einstaklingar í endurhæfingunni voru að meðaltali 127 hverju sinni.

9 einstaklingar komu aðeins í mati á möguleikum til starfsendurhæfingar og eru því ekki teknir með í útreikningunum.

  • 52% höfðu notað vímuefni áður en þeir byrjuðu í starfsendurhæfingunni.
  • 33.5% voru með börn á framfærslu.
  • 76% voru einhleypir.
  • 21.3 mánuðir voru að meðaltali liðnir frá vinnu í upphafi endurhæfingarinnar hjá þeim einstaklingum sem höfðu atvinnusögu.
  • 115 þátttakendur útskrifuðust á árinu og fóru 57,4% þeirra í atvinnu, nám eða virka atvinnuleit
Scroll to Top