Zen teikning, tækifæriskort og gjafaöskjugerð

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Markmið námskeiðsins er að bjóða upp á streitulosandi handavinnu í notalegu umhverfi og einnig að skapa tækifæri til að vinna í samfélagi við aðra og virkja áhugahvöt hvers og eins og sköpunargleði.

  • Mánudaga kl. 9.00 – 11.30 (2. hæð)
  • Fimmtudaga kl. 13.00 – 15.30 (2. hæð)

Á þessu námskeiði munum við bjóða uppá nokkur mismunandi verkefni þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, einnig býðst þátttakendum að hafa mismunandi verkefni í gangi hverju sinni og fá þannig meiri fjölbreyttni inn á námskeiðið.

Á námskeiðinu verða búin til falleg tækifæriskort. Þar munum við nota endurunninn pappír, þurrkuð blóm, lauf, málningu og fleira til að hanna kortin. Hægt er að bæta formum á kortin með túss eða mála blóm og líma þau á kortin.

Aukaverkefni er að einnig útbúa umslag og pakka korti og umslagi inn í sellófan.

Einnig ætlum við að skreyta öskjur og poka sem miðar að því að þróa fallega gjafapakkningu, einnig verður í boði að skreyta plastdunka fyrir ýmsa matvöru s.s. smákökur og kaffi. 

Zen teikning er slakandi iðja með penna, grjót og gler. Leið til að skapa og þjálfa núvitund á sama tíma. Form verða teiknuð á grunnaðar krukkur og steina. Engar reglur gilda um hvernig form þátttakendur geta teiknað. Steinarnir verða límdir saman þannig að útkoman verður fallegur kertastjaki og krukkurnar falleg lýsing í glugga eða á borði.

Þeir sem vilja geta fengið blöð með myndskýringu sem sýnir skref fyrir skref formteikningu og Zen teikniaðferðina. Að öðru leyti eru engar reglur um hvaða form þátttakendur geta teiknað. Slökun og núvitund er í fyrirrúmi.

Námskeiðið verður opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Halldór Bjarki Ipsen og Sigríður Ósk Hannesdóttir.

Scroll to Top