Viðarlist: Tálgaðir bakkar og dýr

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Markmiðið er að búa til fallega og nytsama hluti og kynnast sjálfum sér betur í gegnum listsköpun. Auka verkfærni og efla sjálfstraustið gegnum fjölbreytta iðju. Einnig að skapa tækifæri til að vinna með öðrum og virkja áhugahvöt og sköpunargleði.

  • Miðvikudaga kl. 9.00 – 11.30 (2. hæð Vestur)

Á námskeiðinu verður farið yfir grunn í meðhöndlun viðar kenndar. Auk þess verður kenndur vandaður frágangur verkefna sem eykur líkur á langlífi gripanna. Ýmsir hlutir verða búnir til, brauðbretti, viðarplattar, hreindýr, hundar og önnur dýr, mortel ofl.

Listmunir sem skapaðir verða á námskeiðinu verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar. Allur ágóðinn af sölunni rennur beint í sjóðinn og nýtist þannig þeim þátttakendum sem eru í fjárhagslegri neyð, sjá nánar á heimasíðu Janusar endurhæfingar.

Þátttakendur mega velja og eiga einn listmun á önn af öllum þeim listmunum sem þeir framleiða í iðjunni, á meðan að þeir eru í endurhæfingunni og taka þátt í listmunasköpun innan Janusar endurhæfingar. Allir aðrir listmunirnir þátttakenda „ganga til góðs“, þ.e.a.s. verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar.

Námskeiðið verður opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinandi verður Halldór Bjarki Ipsen.

Scroll to Top