Skilagerð / Viðarlist, bakkar og dýr / Tálgun

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Markmiðið er að búa til fallega og nytsama hluti og kynnast sjálfum sér betur í gegnum listsköpun. Auka verkfærni og efla sjálfstraustið gegnum fjölbreytta iðju. Einnig að skapa tækifæri til að vinna með öðrum og virkja áhugahvöt og sköpunargleði.

  • Fimmtudaga kl. 13.00 – 15.30 (2. hæð – Vestur)

Á námskeiðinu verður ýmislegt í boði og erum við hér að sameina þrjú námskeið í eitt þar sem þátttakendum býðst að vinna við fjölbreytt verkefni.

  • Viðarlist:  Á námskeiðinu verður farið yfir grunn í meðhöndlun viðar kenndar. Auk þess verður kenndur vandaður frágangur verkefna sem eykur líkur á langlífi gripanna. Á námskeiðinu verða ýmsir hlutir búnir til, brauðbretti, viðarplattar, hreindýr, hundar og önnur dýr, mortel ofl.
  • Skiltagerð: Á námskeiðinu verða búin til skilti úr viðar pallettum og plöttum. Þátttakendur fá að hanna ýmist húsnúmers skilti, sumarbústaða skilti eða heimilis skilti/veggskraut. Notast má við servíettur og Mod Podge lím. Mikið úrval er til af akrýl málningu  og stenslum til að skrifa og myndskreyta með.
  • Tálgun: Á námskeiðinu verður farið yfir grunn í tálgun og öruggar aðferðir til tálgunar og meðhöndlunar viðar kenndar. Auk þess verður kenndur vandaður frágangur verkefna sem eykur líkur á langlífi gripanna. Einnig verður kennd brýning og viðhald hnífsins.  Á námskeiðinu verða ýmsir hlutir tálgaðir úr blautum viði en einnig unnið með þurran við. Þátttakendur fá leiðsögn í að ná tökum á sérstökum hnífsbrögðum með hárbeittum hnífum og tileinka sér rétta umgengni við bitverkfæri t.d. axir. Dæmi um verkefni sem byrjað er á er sleif, smjörhnífur og kökuprjónn. Að því loknu taka við ögn flóknari verkefni svo sem fugl, saltbátur, skál, bolli og brauðbretti. 

Listmunir sem skapaðir verða á námskeiðinu verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar. Allur ágóðinn af sölunni rennur beint í sjóðinn og nýtist þannig þeim þátttakendum sem eru í fjárhagslegri neyð, sjá nánar á heimasíðu Janusar endurhæfingar.

Þátttakendur mega velja og eiga einn listmun á önn af öllum þeim listmunum sem þeir framleiða í iðjunni, á meðan að þeir eru í endurhæfingunni og taka þátt í listmunasköpun innan Janusar endurhæfingar. Allir aðrir listmunirnir þátttakenda „ganga til góðs“, þ.e.a.s. verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar.

Námskeiðið verður opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Halldór Bjarki Ipsen og Sigríður Hannesdóttir.

Scroll to Top