Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar
Markmið námskeiðsins er að þjálfa þátttakendur í að ræða saman og vonandi að einhverjir eigi auðveldara með að tjá sig og eignast vini.
- Fimmtudaga kl. 13.00 – 14.30 (4. hæð)
Eftirfarandi má sjá grófa dagskrá:
- 1. tími: Grunnur að góðum samskiptum. Vinna saman eitt og eitt, taka viðtal við hvort annað og kynna síðan viðkomandi einstakling fyrir hópnum.
- 2. tími: Unnið með hugmyndina hvað einkennir góðan vin. 1 á 1, allir tala við alla og kynnast.
- 3. tími: Virk hlustun og fleira tengt samtali. Vinna í litlum hópum (3-4 í hóp)
- 4. tími: Farið í erfið samskipti. Vinna í 4 manna hópum, 2 með og 2 á móti umræðuefninu.
- 5. tími: Samskipti á vinnustað, að vinna í hóp. Unnið í litlum hópum og komist að sameiginlegri niðurstöðu.
Námskeiðið er opinn hópur og geta þátttakendur skráð sig hvenær sem er á tímabilinu. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Umsjónarmenn námskeiðs eru Anna Þóra Þórhallsdóttir, Alma Rún Vignisdóttir, Jón Hjalti Brynjólfsson og Benjamín Júlíusson.
.