Tölum saman

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

13. apríl – 25. maí

Markmið námskeiðsins er að þjálfa þátttakendur í að ræða saman og vonandi að einhverjir eigi auðveldara með að tjá sig og eignast vini. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar.

  • Fimmtudaga kl. 9.00 – 10.30 (4. hæð)

Tímarnir eru stutt fræðsluerindi en síðan verkefni þar sem lagt er upp með að þátttakendur tali saman.

Eftirfarandi má sjá grófa dagskrá:

1. tími: Grunnur að góðum samskiptum. Vinna saman eitt og eitt, taka viðtal við hvort annað og kynna síðan viðkomandi einstakling fyrir hópnum.

2. tími: Unnið með virka hlustun og líkamsstöðu. 1 á 1, allir tala við alla og kynnast.

3. tími: Samtalið, hefja, viðhalda og enda samtal. Vinna í litlum hópum (3-4 í hóp)

4. tími: Farið í erfið samskipti. Vinna í 4 manna hópum, rök með og á móti.

5. tími: Verkefni sem reynir á samvinnu hópsins.

Námskeiðið er opinn hópur og geta þátttakendur skráð sig hvenær sem er á tímabilinu. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager.  Umsjónarmenn námskeiðs eru Anna Þóra Þórhallsdóttir og Benjamín Júlíusson.

.

Scroll to Top