Tölum saman

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

22. apríl – 27. maí

Markmið námskeiðsins er að þjálfa þátttakendur í að ræða saman og vonandi að einhverjir eigi auðveldara með að tjá sig og eignast vini. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar. 

  • Föstudaga kl. 9.30 – 11.00 (4. hæð)

Eftirfarandi má sjá grófa dagskrá:

  • 1. tími: Grunnur að góðum samskiptum. Vinna saman eitt og eitt, taka viðtal við hvort annað og kynna síðan viðkomandi einstakling fyrir hópnum.
  • 2. tími: Unnið með hugmyndina hvað einkennir góðan vin. 1 á 1, allir tala við alla og kynnast.
  • 3. tími: Virk hlustun og fleira tengt samtali. Vinna í litlum hópum (3-4 í hóp)
  • 4. tími: Farið í erfið samskipti. Vinna í 4 manna hópum, 2 með og 2 á móti umræðuefninu.
  • 5. tími: Samskipti á vinnustað, að vinna í hóp. Unnið í litlum hópum og komist að sameiginlegri niðurstöðu. 

Námskeiðið er opinn hópur og geta þátttakendur skráð sig hvenær sem er á tímabilinu. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager.  Umsjónarmenn námskeiðs eru Anna Þóra Þórhallsdóttir, Alma Rún Vignisdóttir, Jón Hjalti Brynjólfsson og Benjamín Júlíusson.

.

Scroll to Top