Textíll, prjón og saumar

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

22. ágúst – 26. september

Markmið námskeiðsins er að bjóða upp á streitulosandi handavinnu í notalegu umhverfi og einnig að skapa tækifæri til að vinna í samfélagi við aðra og virkja áhugahvöt hvers og eins og sköpunargleði. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar.

  • Þriðjudaga kl. 13.00 – 15.30 (2. hæð Miðja)

Saumavél : Farið er yfir grunninn á að vinna með saumavél, gerðir verða auðveldir æfingasaumar og byrjendastykki sem verður púði.

Farið verður yfir grunnatriði í saumi, straujun, meðferð vefnaðar ofl.

Allir munu byrja á að sauma púða og/eða svuntu, svo í framhaldinu svuntur, töskur, púða, grjónapoka og fleira. 

Einnig verður í boði fyrir þátttakendur ef þeir vilja hvíla sig  að prjóna, hekla eða spreyta sig í útsaum.

Námskeiðið er opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Hrefna Þórðardóttir og Sólveig Gísladóttir.

Scroll to Top