Tálgun og útivera (fimmtudaga)

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Markmiðið er að búa til fallega og nytsama hluti og kynnast sjálfum sér betur í gegnum listsköpun. Auka verkfærni og efla sjálfstraustið gegnum fjölbreytta iðju. Einnig að skapa tækifæri til að vinna með öðrum og virkja áhugahvöt og sköpunargleði.

  • Mánudaga kl. 13.00 – 15.30 (2. hæð Vestur)
  • Fimmtudaga kl. 9.00 – 11.30 (2. hæð Vestur)

Á námskeiðinu verður farið yfir grunn í tálgun og öruggar aðferðir til tálgunar og meðhöndlunar viðar kenndar. Auk þess verður kenndur vandaður frágangur verkefna sem eykur líkur á langlífi gripanna. Einnig verður kennd brýning og viðhald hnífsins.

Á námskeiðinu verða ýmsir hlutir tálgaðir úr blautum viði en einnig unnið með þurran við. Þátttakendur fá leiðsögn í að ná tökum á sérstökum hnífsbrögðum með hárbeittum hnífum og tileinka sér rétta umgengni við bitverkfæri t.d. axir. Dæmi um verkefni sem byrjað er á er sleif, smjörhnífur og kökuprjónn. Að því loknu taka við ögn flóknari verkefni svo sem fugl, saltbátur, skál, bolli og brauðbretti. 

Útivera fer eftir veðri og vindum og ákvörðun hópsins.

Listmunir sem skapaðir verða á námskeiðinu verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar. Allur ágóðinn af sölunni rennur beint í sjóðinn og nýtist þannig þeim þátttakendum sem eru í fjárhagslegri neyð, sjá nánar á heimasíðu Janusar endurhæfingar.

Þátttakendur mega velja og eiga einn listmun á önn af öllum þeim listmunum sem þeir framleiða í handverkinu, á meðan að þeir eru í endurhæfingunni og taka þátt í listsköpun innan Janusar endurhæfingar. Allir aðrir listmunirnir þátttakenda „ganga til góðs“, þ.e.a.s. verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar.

Námskeiðið verður opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinandi verður Halldór Bjarki Ipsen.

Scroll to Top