Zen teikning á krukkur og grjót

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Markmið námskeiðsins er að bjóða upp á streitulosandi handavinnu í notalegu umhverfi og einnig að skapa tækifæri til að vinna í samfélagi við aðra og virkja áhugahvöt hvers og eins og sköpunargleði.

  • Mánudaga kl. 9.00 – 11.30 (2. hæð)
  • Fimmtudaga kl. 13.00 – 15.30 (2. hæð)

Námskeiðið er slakandi iðja með penna, grjót og gler. Leið til að skapa og þjálfa núvitund á sama tíma. Form verða teiknuð á grunnaðar krukkur og steina. Engar reglur gilda um hvernig form þátttakendur geta teiknað. Steinarnir verða límdir saman þannig að útkoman verður fallegur kertastjaki og krukkurnar falleg lýsing í glugga eða á borði.

Þeir sem vilja geta fengið blöð með myndskýringu sem sýnir skref fyrir skref formteikningu og Zen teikniaðferðina. Að öðru leyti eru engar reglur um hvaða form þátttakendur geta teiknað. Slökun og núvitund er í fyrirrúmi.

Listmunir sem skapaðir verða á námskeiðinu verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar. Allur ágóðinn af sölunni rennur beint í sjóðinn og nýtist þannig þeim þátttakendum sem eru í fjárhagslegri neyð, sjá nánar á heimasíðu Janusar endurhæfingar.

Þátttakendur mega velja og eiga einn listmun á önn af öllum þeim listmunum sem þeir framleiða í handverkinu, á meðan að þeir eru í endurhæfingunni og taka þátt í listsköpun innan Janusar endurhæfingar. Allir aðrir listmunirnir þátttakenda „ganga til góðs“, þ.e.a.s. verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar.

Námskeiðið verður opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Halldór Bjarki Ipsen, Sigríður Hannesdóttir og Þórhildur Kristjánsdóttir.

Scroll to Top