Tálgun

8. nóvember – 13. desember

Þátttakendur æfa sig í vinnutengdum athöfnum á vinnusvæðum iðjunnar ásamt að æfa sig í mætingum, stundvísi, auka virkni og að geta leitað eftir aðstoð hjá leiðbeinendum og þátttakendum iðjunnar. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar. 

  • Þriðjudaga kl. 13.00 – 15.30 (2. hæð Vestur)

Á þessu námskeiði leyfum við sköpunargleðinni að taka völdin, steypan bíður uppá endalausa möguleika í sköpun og hægt að móta nánast hvað sem er úr henni.  Við notumst við nokkrar gerðir af steypuböndum, munirnir eru svo málaðir og má nota þá bæði úti sem inni.

Atvinnutengd vinnufærni: Þjálfa sig í að  vinna verkefni frá uppafi til enda, vera hluti af verkferli og styrkja sjálfstæð vinnubögð.

Félagsfærni: Vinna með vinnutengd samskipti t.d. hvað er viðeigndi að ræða um á vinnusvæði, skiptast á upplýsingum tengt verkefninu, koma skilaboðum áfram, spjalla við aðra og taka þátt í umræðuefni á vinnusvæði , o.s.fr. þjálfa þátttakanda í að aðstoða aðra ef þeir geta, auka félagslega færni – lesa í félagslegar aðstæður,

Hand- og verkfærni: Vinna með líkambeitingu, samhæfingu hreyfinga, fínhreyfingar og skynáreiti, fara eftir leiðbeiningum og ýta undir skapandi hæfileika.

Þátttakendur mega kaupa þá listmuni sem þeir gera á námskeiðinu gegn vægu gjaldi. Allir aðrir listmunirnir þátttakenda „ganga til góðs“, þ.e.a.s. verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar.  Allur ágóðinn af sölunni rennur beint í sjóðinn og nýtist þannig þeim þátttakendum sem eru í fjárhagslegri neyð, sjá nánar á heimasíðu Janusar endurhæfingar

Námskeiðið er opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinandi verður Halldór Bjarki Ipsen.

Scroll to Top