Skógarlíf í borginni

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

11. apríl – 30. maí

Að þátttakendur fái tækifæri til að að ná tengingu við náttúruna og upplifa þá vellíðan sem hún býður upp á. Að styrkja félagsleg tengsl úti í náttúrinni. Að þátttakendur læri að kvista og grisja til þess að geta nýtt sér heima. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar. 

  • Þriðjudaga kl. 9.00 – 11.30 (3. hæð – Holtasóley)

Göngustígar verða lagðir og almennri skógarumhirðu sinnt. Gróðursetning, grisjun og kvistun eftir ástandi og þörfum svæðisins. Einnig verður hægt að njóta skógarbaða, eins og það hefur verið kallað og merkir að njóta náttúrunnar í algjörri núvitund. Fyrir þá sem vilja verður boðið upp á, jóga, hláturjóga, fuglaskoðun, taka myndir af náttúru og dýrum.

Fyrsti tími verður í Janus endurhæfingu þar sem við munum fræðast um gróður og líðan og endað í Grasagarðinum.

Í öll skiptin verður hist í Janus endurhæfingu kl. 9:00, á annari  hæð og sameinast í bíla og farið saman í Öskjuhlíðina.

Við munum taka nestispásu, nema 11. apríl.

Muna að klæða sig eftir veðri.

Námskeiðið er opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Halldór Bjarki Ipsen, Salóme Halldórsdóttir og S.Anna Einarsdóttir.

Scroll to Top