Skiltagerð, tækifæriskort og mósaík

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

16. ágúst – 20. september

Þátttakendur æfa sig í vinnutengdum athöfnum á vinnusvæðum iðjunnar ásamt því að æfa sig í mætingum, stundvísi, auka virkni og að geta leitað eftir aðstoð hjá leiðbeinendum og þátttakendum iðjunnar. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna og þátttakanda Janusar endurhæfingar.

  • Þriðjudaga kl. 13.00 – 15.30 (2. hæð Suður)

Á þessu námskeiði munum við bjóða uppá nokkur mismunandi verkefni þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, einnig býðst þátttakendum að hafa mismunandi verkefni í gangi hverju sinni og fá þannig meiri fjölbreyttni inn á námskeiðið.

Á námskeiðinu verða búin til falleg tækifæriskort. Þar munum við nota endurunninn pappír, þurrkuð blóm, lauf, málningu og fleira til að hanna kortin. Hægt er að bæta formum á kortin með túss eða mála blóm og líma þau á kortin.

Aukaverkefni er að einnig útbúa umslag og pakka korti og umslagi inn í sellófan.

Mósík: þar skerum við niður gler og límum á krukkur, möguleiki er að festa krukkurnar á til að búa til fallegt borðskraut.

Skilti: Við skreytum plötur með texta og myndum, notum servéttur eða málum á skiltin.

Atvinnutengd vinnufærni: Þjálfa sig í að vinna verkefni frá upphafi til enda, þjálfa sig í vinnuhraða, auka trúna á sjálfan sig, styrkja sjálfstæð vinnubrögð, auka úthald til vinnu bæði andlega og líkamlega, auka félagslega færni, lesa í félagslegar aðstæður, auka getu og úthald til aða sinna verkefnum sem höfða ekki til þeirra og finna styrkleika sína og vinna með þá.

Félagsfærni: Vinna með vinnutengd samskipti t.d. hvað er viðeigandi að ræða um á vinnusvæði, skiptast á upplýsingum á vinnusvæði tengt verkefninu, koma skilaboðum áfram, spjalla við aðra þátttakendur eins og t.d. að taka þátt í umræðuefni á vinnusvæði, þjálfa í að aðstoða aðra, auka félagslega færni og lesa í félagslegar aðstæður.

Hand- og verkfærni: Auka og styrkja verkfærni, vinna með líkambeitingu, samhæfingu hreyfinga, fínhreyfingar og skynáreiti, þjálfa sig í að fara eftir leiðbeiningum og ýta undir skapandi hæfileika.

Þátttakendur mega kaupa mósaík listmuni sem þeir gera gegn vægu efnisgjaldi.  Húsgögnin sem eru í eigu Janusar enduhæfingar og þátttakendur gera upp er þátttakendum velkomið að kaupa gegn vægu gjaldi ef áhugi er fyrir því.  Allir aðrir listmunirnir þátttakenda „ganga til góðs“, þ.e.a.s. verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar.  Allur ágóðinn af sölunni rennur beint í sjóðinn og nýtist þannig þeim þátttakendum sem eru í fjárhagslegri neyð, sjá nánar á heimasíðu Janusar endurhæfingar.

Námskeiðið er opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Sigríður Ósk Hannesdóttir og Halldór Bjarki Ipsen.

Scroll to Top