Saumavél

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

11. janúar – 15. febrúar

Markmið námskeiðsins er að bjóða upp á streitulosandi handavinnu í notalegu umhverfi og einnig að skapa tækifæri til að vinna í samfélagi við aðra og virkja áhugahvöt hvers og eins og sköpunargleði. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar.

  • Mánudaga kl. 9.00 – 11.30 (2. hæð Miðja)

Farið verður í grunninn á að vinna með saumavél, gerðir verða auðveldir æfingasaumar og byrjendastykki sem verður púði.

Farið verður yfir grunnatriði í saumi, straujun, meðferð vefnaðar ofl.

Allir munu byrja á að sauma púða og/eða svuntu, svo í framhaldinu svuntur, töskur, púða, grjónapoka og fleira. 

Námskeiðið er opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinandi verður Þórhildur Kristjánsdóttir.

Llistmunirnir þátttakenda „ganga til góðs“, þ.e.a.s. verða seldir á jólamarkaði og í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar.  Allur ágóðinn af sölunni rennur beint í sjóðinn og nýtist þannig þeim þátttakendum sem eru í fjárhagslegri neyð, sjá nánar á heimasíðu Janusar endurhæfingar.

Námskeiðið er opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Hrefna Þórðardóttir og Þórhildur Kristjánsdóttir.

Scroll to Top