Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar
7. nóvember – 12. desember
Markmið námskeiðsins er að bjóða upp á streitulosandi handavinnu í notalegu umhverfi og einnig að skapa tækifæri til að vinna í samfélagi við aðra og virkja áhugahvöt hvers og eins og sköpunargleði. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar.
- Mánudaga kl. 9.00 – 11.30 (2. hæð Miðja)
Farið verður í grunninn á að vinna með saumavél, gerðir verða auðveldir æfingasaumar og byrjendastykki sem verður púði, einnig grunnatriði í saumi, straujun, meðferð vefnaðar ofl.
Fyrir þá sem eru lengra komnir mun bjóðast að gera flóknari verkefni.
Þau verkefni sem verða í boði eru: svuntur, töskur, púðar, augngrímur, hitapokar með grjónum og fleira.
Llistmunirnir þátttakenda „ganga til góðs“, þ.e.a.s. verða seldir á jólamarkaði og í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar. Allur ágóðinn af sölunni rennur beint í sjóðinn og nýtist þannig þeim þátttakendum sem eru í fjárhagslegri neyð, sjá nánar á heimasíðu Janusar endurhæfingar.
Námskeiðið er opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Hrefna Þórðardóttir og Þórhildur Kristjánsdóttir.