Saumavél 101 & 201

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

27. september – 1. nóvember

Markmið námskeiðsins er að bjóða upp á streitulosandi handavinnu í notalegu umhverfi og einnig að skapa tækifæri til að vinna í samfélagi við aðra og virkja áhugahvöt hvers og eins og sköpunargleði. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar.

  • Þriðjudaga kl. 9.00 – 11.30 (2. hæð – Suður)

Saumavél 101. Þar verður farið í grunninn á að vinna með saumavél, gerðir verða auðveldir æfingasaumar og byrjendastykki sem verður púði.

Farið verður yfir grunnatriði í saumi, straujun, meðferð vefnaðar ofl.

Saumavél 201. Þar mun bjóðast að gera flóknari verkefni.

Allir munu byrja á að sauma púða og/eða svuntu

Saumavél 201 verður í boði að gera svuntur, töskur, púða, gera við föt, grjónapoka og fleira.

Námskeiðið er opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Halldór Bjarki Ipsen, Sigríður Hannesdóttir og Þórhildur Kristjánsdóttir.

Scroll to Top