Rýnt í rófið

Fræðsla um einkenni einhverfu og hvernig þau einkenni geta haft áhrif á daglegt líf einstaklings.

Miðvikudaga kl. 14.00 – 15.30 (4. hæð)

Námskeiðið „ Rýnt í rófið“ er ætlað þátttakendum sem eru með greinda einhverfurófsröskun eða að grunur er um slíkt.

Farið verður yfir helstu einkenni einhverfu, eins og félagslegt samspil, mál og tjáningu, og sérkennilega og/eða áráttukennda hegðun. Einnig verður farið þætti sem tengjast óhefðbundnum taugaþroska og sem hefur áhrif á skynúrvinnslu, framkvæmdarfærni og fleira.

Samhliða fræðslu er þátttakendum frjálst að tjá sig og deila eigin reynslu og áhugamálum. Þátttakendur geta með því að deila og hlusta á aðra orðið stuðningur fyrir hvern annan.

Scroll to Top