Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar
8. nóvember – 13. desember
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur æfa sig í vinnutengdum athöfnum á vinnusvæðum iðjunnar ásamt því að æfa sig í mætingum, stundvísi, auka virkni og að geta leitað eftir aðstoð hjá leiðbeinendum og þátttakendum iðjunnar. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar.
- Þriðjudaga kl. 9.00 – 11.30 (2. hæð – Suður)
Á námskeiðinu verður boðið upp á að læra prjón, hekl, flos og taulitun.
Boðið verður upp á grunn í prjóni fyrir byrjendur og við prjónum einfaldar borðtuskur, að auki verða kennd fleiri mynstur.
Einnig má læra aðferðir í flosi. Flos er þegar flospenni er notaður til að „teikna“ með garni í efni. Verkið má svo sauma saman í púða eða tösku og einnig einfalt vegghengi eða setja í myndaramma.
Taulitun stendur einnig til boða og verður notast við gúmmíteygjur til að fyrst hnýta efnin á mismunandi hátt til að gera mynstrið og svo er taulitnum sprautað yfir með sérstaklega útbúnum flöskum.
Markmið námskeiðsins er að bjóða upp á streitulosandi handavinnu í notalegu umhverfi þar sem við sitjum í hóp með öðrum og vinnum í höndunum. Einnig að virkja áhugahvöt hvers og eins og sköpunargleði.
Atvinnutengd vinnufærni: Þjálfa sig í að vera hluti af verkferli t.d. við framleiðslu, þjálfa sig í vinnuhraða, auka úthald til vinnu bæði andlega og líkamlega, finna styrkleika sína og vinna með þá og auka getu og úthald til að sinna verkefnum sem höfða ekki til þeirra.
Félagsfærni: Vinna með vinnutengd samskipti t.d. hvað er viðeigandi að ræða um á vinnusvæði, skiptast á upplýsingum á vinnusvæði tengt verkefninu, koma skilaboðum áfram, spjalla við aðra þátttakendur eins og t.d. að taka þátt í umræðuefni á vinnusvæði og þjálfun í að aðstoða aðra, auka félagslega færni og lesa í félagslegar aðstæður.
Hand- og verkfærni: Þjálfa sig í að fara eftir leiðbeiningum, ýta undir skapandi hæfileika.
Allir listmunir sem skapaðir verða á námskeiðinu verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar. Allur ágóðinn af sölunni rennur beint í sjóðinn og nýtist þannig þeim þátttakendum sem eru í fjárhagslegri neyð, sjá nánar á heimasíðu. Janusar endurhæfingar.
Námskeiðið er opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Halldór Bjarki Ipsen og Þórhildur Kristjánsdóttir.