Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar
23. febrúar – 23. mars
Markmið námskeiðsins er að efla þátttakendur Janusar endurhæfingar í að takast á við eigin fjármál. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar.
- Fimmtudaga kl. 13.00 – 15.00 (4. hæð)
Á námskeiðinu verður farið í eftirfarandi viðfangsefni;
– Fjármálalæsi
– Sjálfshjálp í fjármálum
– Áhrif fjármála á líðan
– Fjármálahegðun
– Sjálfsstjórn í fjármálum
– Úrræði vegna fjármálavanda
– Að setja sér markmið í fjármálum
Námskeiðið mun innihalda fræðslu, verkefni, umræður og myndbönd.
Námskeiðið er opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Elsa Guðrún Sveinsdóttir og S. Anna Einarsdóttir.