Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar
Markmið námskeiðsins er að efla þátttakendur Janusar endurhæfingar í að takast á við eigin fjármál.
- Mánudaga kl. 13.00 – 15.00 (4. hæð)
Á námskeiðinu verður farið í eftirfarandi viðfangsefni;
- Fjármálalæsi
- Sjálfshjálp í fjármálum
- Áhrif fjármála á líðan
- Fjármálahegðun
- Sjálfsstjórn í fjármálum
- Úrræði vegna fjármálavanda
- Að setja sér markmið í fjármálum
Námskeiðið mun innihalda fræðslu, verkefni, umræður og myndbönd.
Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Námskeiðið er opinn hópur og því hægt að skrá sig í það á miðju tímabili. Námskeiðið telur til mætinga og er ætlað öllum þátttakendum Janusar endurhæfingar. Leiðbeinendur verða Elsa Sveinsdóttir og Sigríður Anna Einarsdóttir.