Pappírsgerð og listmunir úr dagblöðum og gifsi

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Markmiðið er að búa til fallega og nytsama hluti og kynnast sjálfum sér betur í gegnum listsköpun. Auka verkfærni og efla sjálfstraustið gegnum fjölbreytta iðju. Einnig að skapa tækifæri til að vinna með öðrum og virkja áhugahvöt og sköpunargleði.

  • Miðvikudaga kl. 13.00 – 15.30 (2. hæð Suður)

Á námskeiðinu verður þátttakendum kennt að búa til pappírsarkir fyrir gjafakort úr tættum pappír, einnig verður kennt að búa til fugla, loftbelgi og fleira úr dagblöðum sem er svo gifsað yfir og málað.

Listmunir sem skapaðir verða á námskeiðinu verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar. Allur ágóðinn af sölunni rennur beint í sjóðinn og nýtist þannig þeim þátttakendum sem eru í fjárhagslegri neyð, sjá nánar á heimasíðu Janusar endurhæfingar.

Þátttakendur mega velja og eiga einn listmun á önn af öllum þeim listmunum sem þeir framleiða í iðjunni, á meðan að þeir eru í endurhæfingunni og taka þátt í listmunasköpun innan Janusar endurhæfingar. Allir aðrir listmunirnir þátttakenda „ganga til góðs“, þ.e.a.s. verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar.

Námskeiðið verður opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Sigríður Hannesdóttir og Halldór Bjarki Ipsen.

Scroll to Top