Örnámskeið handverks – opin vinnustofa

Markmiðið er að búa til fallega og nytsama hluti og kynnast sjálfum sér betur í gegnum listsköpun. Auka verkfærni og efla sjálfstraustið gegnum fjölbreytta iðju. Einnig að skapa tækifæri til að vinna með öðrum og virkja áhugahvöt og sköpunargleði. 

  • Mánudaginn 20. desember kl. 9.00 – 11.30 og kl. 13.00 – 15.30
  • Þriðjudaginn 21. desember kl. 9.00 – 11.30 og kl. 13.00 – 15.30
  • Miðvikudaginn 22. desember kl. 9.00 – 11.30 og kl. 13.00 -15.30
  • Fimmtudaginn 23. desember kl. 9.00 – 11.30

Á námskeiðinu munu þátttakendur ljúka við hin ýmsu verkefni sem eru ókláruð frá fyrri námskeiðum ásamt því að taka þátt í undirbúningi fyrir ný námskeið s.s flokkun efna, tiltekt á svæðum, taka niður jólaskraut og ýmislegt fleira.

Námskeiðið er opinn hópur og geta þátttakendur skráð sig hvenær sem er á tímabilinu. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager.

Umsjónarmenn námskeiðsins eru Halldór Bjarki Ipsen og Sigríður Hannesdóttir.

Scroll to Top