Núvitundarnámskeið

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Markmið námskeiðsins er að þjálfa færni í núvitund. Læra leiðir til þess að ná betri stjórn á hugsunum og fá innsýn í líðan sína.

  • Miðvikudaga kl. 13.00 – 15.30 (4. hæð)

Námskeiðið nær yfir átta vikna tímabil. Á miðvikudögum frá kl 13:00 – 15:30 verður fræðsla um núvitund og æfingar vikunnar kynntar, tíminn endar á núvitundaræfingum. Þar að auki verða núvitundaræfingar mánudögum kl. 11:30 -12:00 og föstudögum kl. 11:30- 12:00.

Á námskeiðinu verður farið yfir grunntækni núvitundar og hvernig hægt er að flétta núvitund inn í daglegt líf.

Vika 1: Sjálfstýring – hvaða áhrif hefur hún á líf okkar. Öndunar- og líkamshugleiðsla.

Vika 2: Læra að greina á milli skynjunar og hugsunar. Líkamsskönnunar hugleiðsla.

Vika 3: Takmörk okkar og viðbrögð við þeim. Samþætting hugar og líkama. Núvitundar hreyfing.

Vika 4: Læra að leyfa hugsunum að koma og fara. Sjá erfiðleika frá nýju sjónarhorni. Hljóð og hugsanir.

Vika 5: Takast á við erfiðleika með opnum huga og koma þannig í veg fyrir að þeir verði umfangsmeiri. Könnun erfiðleika.

Vika 6: Samkennd gagnvart okkur sjálfum og umhverfinu. Vinsemdar hugleiðsla.

Vika 7: Vani og lífsmynstur. Gera hluti sem veita þér gleði. Takast á við kvíða, streitu og áhyggjur með góðvild.

Vika 8: Núvitund – hluti af þínu daglega lífi.

Mikilvægt er að þátttakendur skuldbindi sig til að sinna núvitundaræfingum á tímabilinu.

Námskeiðið verður lokaður hópur og verður ekki hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Elsa Sveinsdóttir og Sigríður Pétursdóttir.

Scroll to Top